Samfélagsmiðlastefna Iðunnar
Iðan fræðslusetur nýtir samfélagsmiðla til að efla upplýsingaflæði og eiga í samskiptum við félagsmenn, hagsmunaaðila og almenning. Á samfélagsmiðlum verður komið á framfæri upplýsingum, útgefnu efni, myndskeiðum, auglýsingum, áherslum og skilaboðum.
Markmið Iðunnar á samfélagsmiðlum er:
- Að styrkja ímynd Iðunnar og upplýsa og auka vitund félagsmanna, fagaðila og almenning um þá fjölbreyttu starfsemi sem þar fer fram.
- Að nota fjölbreyttar leiðir miðlunar til að auglýsa námskeið, fræðslufundi, viðburði og fleira og ná þannig til ólíkra markhópa eftir aldri og áhugasviðum.
- Að hvetja til umræðu um símenntun í iðnaði og skapa vettvang fyrir óformleg samskipti.
- Að ná athygli sem flestra með skemmtilegum skilaboðum og áhugaverðum fróðleik sem tengist iðnaði almennt og námi í iðngreinum.
- Efla ímynd iðnaðar og iðnnáms í landinu með fréttaflutningi og fróðleik.
- Að fjölga þjónustuleiðum sem notendum standa til boða
Megináherslur Iðunnar á samfélagsmiðlum eru:
- Að tjá sig á vönduðu, tilbreytingarríku og auðskiljanlegu nútímamáli.
- Að sýna ávallt kurteisi og virðingu. Við treystum á almenna skynsemi og höfum í huga að allt sem fer á netið er opinbert. Trúnaðarmál eru ekki rædd á samfélagsmiðlum.
- Að vera upplýsandi og meðvituð um umræðuna í þjóðfélaginu hverju sinni.
- Að svara öllum ábendingum og skilaboðum eins hratt og kostur er. Ábendingum er svarað í samstarfi við viðeigandi starfsmann.
- Að forðast deilur við þá sem koma með neikvæðar athugasemdir en reyna að halda staðreyndum til haga.
- Að fjarlægja innlegg sem falla ekki að reglum viðkomandi miðils, persónuverndarlögum eða fela í sér meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga og hópa.
- Að virða friðhelgi og einkalífs fólks.
Markhópar Iðunnar á samfélagsmiðlum eru:
- Félagsmenn Iðunnar og eigendur
- Fagfólk í iðnaði
- Almenningur, fjölmiðlar, hagsmunaaðilar og stjórnsýslan.
Ábyrgð á birtingu efnis
Aðalábyrgð á samfélagsmiðlum bera markaðsstjóri og vefritstjóri