Sveinspróf í snyrtigreinum
Sveinspróf í snyrtigreinum eru haldin a.m.k. einu á ári í hverri iðngrein ef næg þátttaka næst. Sveinsprófsnefnd ákveður prófdaga og próftökustað.
Smelltu á viðkomandi grein til að fá frekari upplýsingar:
Næsta próf í hársnyrtiiðn verður í feb/mars 2023. Bóklegt próf verður mánudaginn 20.febrúar. Verklegt próf verður haldið í Hárakademíunni 4. og 5. mars, í Tækniskólanum 11. og 12. mars, á Akureyri 18.mars ef næg þátttakanæst. Umsóknarfrestur er til 3.janúar 2023.
Umsækjandi þarf að framvísa staðfestum námssamningi og skila inn burtfararskírteini í hársnyrtiiðn. Lífeyrissjóðsyfirlit, til staðfestingar á vinnustaðanámi, þarf að fylgja umsókn.
Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.
Sveinspróf í snyrtifræði verður 3. - 5.mars 2023, bóklegt próf verður 3.mars og verklegt 4. og 5. mars. Umsóknarfrestur er til 15.janúar 2023.
Umsækjandi þarf að framvísa staðfestum námssamningi, skila inn burtfararskírteini eða staðfestingu frá skóla um að hann ljúki námi á yfirstandandi önn og muni fá útgefið burtfararskírteini. Lífeyrissjóðsyfirlit, til staðfestingar á vinnustaðanámi, þarf að fylgja umsókn.
Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í snyrtigreinum veitir Valdís Axfjörð í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á valdis(hjá)idan.is.