Sveinspróf í snyrtigreinum
Sveinspróf í snyrtigreinum eru haldin a.m.k. einu á ári í hverri iðngrein ef næg þátttaka næst. Sveinsprófsnefnd ákveður prófdaga og próftökustað.
Smelltu á viðkomandi grein til að fá frekari upplýsingar:
Næsta próf í hársnyrtiiðn verður í sept/okt 2025, bóklegt próf 15.september, verkleg próf verða einhverjar af þessum helgum, 27.-28.sept, 4.-5. okt, 11.-12.okt í Reykjavík og 18.-19.okt á Akureyri ef næg þátttaka næst. Umsóknarfrestur er til 8.ágúst 2025.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit eða staðfestingu frá skóla úr rafrænni ferilbók og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast á yfirstandandi önn.
Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.
Sveinspróf í snyrtifræði verður 27. og 28.sept, 11. og 12. okt, skriflegt próf verður 24.sept. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2025.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit eða staðfestingu frá skóla úr rafrænni ferilbók og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast á yfirstandandi önn.
Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í snyrtigreinum veitir Valdís Axfjörð í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á valdis(hjá)idan.is.