Löggilding mannvirkjahönnuða
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í nóvember 2024 og verður námskeiðið í fjarkennslu.
Opnað verður fyrir fyrirlestra þriðjudaginn 5. nóvember kl. 9.00 og verða þeir opnir til 22. nóvember kl. 12.00. Námskeiðinu lýkur með prófi föstudaginn 22. nóvember kl. 9.00 – 12.00.
Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til endurmenntunar án prófs.
Sótt er um þátttöku á námskeiðinu á mínum síðum á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hms.is.
Fylgigögn með umsókn eru
- Staðfest afrit af prófskírteini umsækjanda
- Staðfesting ráðuneytis um réttindi til starfsheitis
- Vottorð/um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1. mgr. 26. gr. laga um mannvirki