image description

Ábyrgð byggingastjóra

Þetta námskeið er fyrir þá sem ætla sér að starfa sem byggingarstjórar og stýra byggingarframkvæmdum í samræmi við samþykktir, lög og reglur. Markmið þess er að upplýsa þátttakendur um ábyrgð sína og skyldur sem byggingarstjórar. Fjallað er um byggingarleyfi og önnur samskipti sem byggingarstjóri þarf að eiga við byggingaryfirvöld. Farið yfir hlutverk byggingarstjóra við verkframkvæmdir og meðhöndlun uppdrátta, lög, reglugerðir, tryggingar og tryggingaslit. Kynnt gildi og framkvæmd úttekta, s.s. áfanga-, fokheldis-, stöðu- og lokaúttekta. Fjallað er um gæðakerfi byggingarstjóra. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.


Næsta námskeið:

Ábyrgð byggingastjóra

Þetta námskeið er nauðsynlegt fyrir þá sem ætla sér að starfa sem byggingarstjórar í samræmi við lög og reglur. Markmið þess er að upplýsa þátttakendur um ábyrgð sína og skyldur. Fjallað er um byggingarleyfi og önnur samskipti sem byggingarstjóri þarf að eiga við byggingaryfirvöld og hlutverk hans við verkframkvæmdir. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband