VISKA
Iðan fræðslusetur og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hlutu í mars s.l. styrk úr Erasmus+ sjóði Evrópusambandsins. Verkefnið heitir VISKA (Visible Skills of Adults).
Í verkefninu verður unnið að fimm meginþáttum:
- Þróa og efla tengslanet hagsmunaaðila í sveitafélögum og á landsvísu (stefnumótendur, aðilar vinnumarkaðarins og fagfólk sem vinnur með raunfærnimat/mat á færni).
- Þróa og/eða aðlaga verkfæri sem nýtt eru í mati á færni, með rafræna miðla og einstaklingsnálgun í huga, til að nýta með sérstökum markhópum og tryggja gæði raunfærnimatsferlisins.
- Skapa sameiginleg viðmið fyrir skráningu og mat á yfirfæranlegri færni fyrir fjölbreytta markhópa (innflytjendur og/eða fólk með litla formlega menntun).
- Þjálfun og/eða færniuppbygging fyrir náms- og starfsráðgjafa og aðra fagaðila sem koma að raunfærnimati, með ákveðna markhópa í huga.
- Bæta aðgengi að og þekkingu á mati á færni og þeirri þjónustu og stuðningi sem í boði er, með ákveðna markhópa í huga. Nánari upplýsingar um verkefnið veita Helen og Rakel hjá Iðunni
Útgefið efni