Kynbundið náms- og starfsval í iðn- og starfsnámi
Jämställdhet i arbetsplatsförlagt lärande, Norden- för att stödja ungdomar att våga välja, och fullfölja, ett otraditionellt yrkesval
Jafnréttismál í iðn- og starfsnámi - Skýrsla!
Norræn skýrsla um jafnréttismál í iðn-og starfsnámi (Jämställdhet i arbetsplatsförlagt lärande, Norden) kom út árinu. Niðurstaðan sýnir að jafnréttismál í málaflokknum eru aðkallandi. Átaksverkefni samtaka í atvinnulífinu eru áberandi en til að ná betri árangri er almenn þörf fyrir aukinni fræðslu og færni á sviði jafnréttismála. Höfundar skýrslunnar nefna sérstaklega:
- Mikilvægi þess að efla fræðslu til þeirra sem eru að kenna og leiðbeina iðn- og starfsnámsnemum í skólum og í fyrirtækjum, þ.m.t. í kennara- og iðnmeistaranámi.
- Hlutverk og áhrif fyrirmynda.
- Framsetning og kynningarmál í iðn- og starfsnámi.
- Kerfisbreytingar sem taka á málaflokknum.
Verkefni hlaut styrk frá Norrænu upplýsingamiðstöðina um kynjajafnrétti (Nordisk information för kunskap om kön).
Hér má nálgast skýrsluna - Norræn skýrsla.
Tilgangurinn með þessu verkefni er að skiptast á upplýsingum um hvað er verið að gera í þátttökulöndunum, hvað varðar kynbundið náms- og starfsval og hvernig hægt sé að draga úr kynbundnu námsvali. Markmiðið með þessu verkefni er að vekja máls á umræðunni um jafnrétti til iðnnáms óháð kyni þar sem sérstök áhersla er lögð á vinnustaðina (vinnustaðanám).
Í þessu verkefni verður lögð áherslu á að draga fram umræðuna um jafnrétti og áhrif þess á vinnumarkaði, hvernig styðjum við iðnnema sem velja sér fag þar sem annað kynið er ráðandi, hvaða áhrif getur meistari/tilsjónarmaður haft í þessu samhengi? Af hverju þurfum við jafnara kynjahlutfall á vinnumarkaði? Hægt er að draga fram umræðuna með því að kynna sér stöðuna hér á landi ásamt því sem er að gerast í þátttökulöndunum (Svíþjóð, Noregur, Álandseyjar). Hér er hægt að lesa meira til um verkefnið http://www.nikk.no/jamstalldhet-i-arbetsplatsforlagt-larande-i-norden/. Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni.