3D prentun í iðnaði

málm- og véltæknigreinar

 Á námskeiðinu eru kennd grunnatriði í þrívíddarprentun. Unnið er með allt ferlið í notkun 3D prentara þ.e. umgengni og notkun prentarans, hönnun verkefna og tölvuvinnsla. Þátttakendur nota Fusion 360 teikniforritið, teikna hlut og prenta út, sækja verkefni á netið og prenta. 
Þátttakendur setja upp prentara, Bambu Lab A1 Combo
, nota hann í verkefnum og taka með heim í lok námskeiðs. Prentarinn er hluti af námskeiðsgjöldum. Tilgangurinn er að þátttakendur geti haldið áfram eftir að námskeiðinu lýkur og aukið þekkingu sína og getu í 3D prentun og 3D teikningu.  

  • Þrívíddarprentari er settur saman og fjallað um viðhald og umhirðu tækisins.
  • Kennt er á Bambu Studio og OrcaSlicer hugbúnað sem notaður er til að undirbúa 3D módel fyrir prentun og farið yfir helstu atriðin í hugbúnaðinum til að ná sem bestum árangri í prentun.
  • Farið verður yfir mismunandi efni til 3D prentunar og helstu eiginleika þeirra.
  • Verkleg kennsla á 3D prentara til þess að hefja prentun.
  • Farið verður yfir grunnatriði í tækniteiknun í Fusion 360 og hanna þátttakendur 3D módel sem verður prentað.
  • Þátttakendum gefst kostur að kynnast 3D skanna og lauslega verður farið yfir hugbúnað sem notaður er til eftirvinnslu á 3D skönnuðum hlutum.
  • Reynsla af 3D prentun er ekki þörf en þáttakendur þurfa nauðsynlega að hafa eigin fartölvu og góða mús til að  vinna verkefni og til að setja upp hugbúnað sem verður kynntur á námskeiðinu. 
  • Á þessu námskeiði gilda ekki gjafabréf eða önnur afsláttarkjör en niðurgreiðsla til félagsfólks Iðunnar fræðsluseturs.


    Kennari: Jóhannes Páll Friðriksson


Næst kennt

DAGSETNINGKENNTFRÁTILNÁMSÞÁTTURSTAÐSETNING
19.09.2024fim.09:0016:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20Sjá nánar
15.08.2024fim.09:0016:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20Sjá nánar
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband