Erfiðir viðskiptavinir

Flestir kannast við að fá erfiða viðskiptavini sem geta jafnvel lagst á starfsfólk eins og vörubílahlass af leiðindum og fúkyrðum. Á þessu námskeiði er því fjallað er um mikilvæga þætti til að afvopna erfiða viðskiptavini.

Markmið:

  • Skilja betur hvað virkar best í samskiptum við erfiða viðskiptavini.
  • Vera meðvitaður um eigin líðan.
  • Taka ekki inn á sig reiði annarra.
  • Efla öryggi í samskiptum, fagmennsku og styrkja liðsheildina.

Innifalið:

  • Rafrænt námskeið með fróðleiksmolum, leiknum íslenskum vídeóum, viðtölum við sérfræðinga, krossaspurningum og verkefnum. Lengd: ca. 1-2 klst.
  • Rafbókin Að fást við erfiða viðskiptavini. Lesa má bókina fyrir námskeið og einnig hægt að nota til upprifjunar.
  • Gátlisti til að meta eigin viðbrögð í samskiptum við erfiða viðskiptavini. Lengd: ca 30. mín.
  • Viðurkenningarskjal að námskeiði loknu.
  • Heildarlengd ca. 10 klst. (hægt að brjóta upp í nokkra áfanga). Námskeiðið er opið í 3 vikur. Námskeiðið er einnig hægt að halda hjá fyrirtæki.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband