Hönnuðir, prentsmiðir, listamenn, stjórnendur markaðsstarfs, umbrotsmenn, blaðamenn

Siggi Ármanns hönnuður fer yfir og leiðbeinir þátttakendum um tækninýjungar, brellur og skemmtilega nýbreytni sem kynnt er á Adobe Max ráðstefnunni sem er haldin í lok október. Farið verður í nýjungar í gervigreind í skapandi myndvinnslu og teikningu bæði í Photoshop og Illustrator en einnig tímasparandi og skemmtilegar nýjungar í Indesign. Vinnusmiðjan er haldin í Vatnagörðum 20 í tvö kvöld og boðið upp á léttar veitingar. Í boði er að taka með eigin tölvu og verkefni til að vinna með í vinnusmiðjunni. Þátttakendur fá einnig aðgang að myndskeiðum og hlaðvarpi þar sem fleiri íslenskir hönnuðir og listamenn ræða um helstu nýjungar og strauma og stefnur framundan í skapandi vinnu.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband