Hringrásarhagkerfið og lífsferilsgreiningar
Sigríður Ósk Bjarnadóttir fer yfir grundvallaratriði hringrásarhagkerfisins og hvernig má framkvæma lífsferilsgreiningar. Sigríður eða Sirrý er framkvæmdastjóri umhverfismála hjá eignarhaldsfélaginu Hornsteini ehf. Sirrý lauk doktorsprófi í byggingarverkfræði árið 2012 og hefur skrifað fjölda ritrýndra fræðigreina og bókakafla varðandi loftslagsmál og aðlögunarhæfni bygginga og innviða.
Ávinningur námskeiðsins er dýpri þekking á þessum hugtökum og hvernig mætti nýta sér aðferðafræðina í starfi.
Námskeiðinu er skipt í eftirfarandi kafla:
● Gróðurhúsalofttegundir og loftslagsáhrif
● Lífsferilsgreiningar (LFG)
o Fasar í lífsferilsgreiningu
o Framkvæmd lífsferilsgreininga
● Hringrásarhagkerfið
o Hringrásarhagkerfið og mannvirkjahönnun
o Hringrásar viðskiptaáætlanir