List mætir matreiðslu hjá Annie Hesselstad

Annie Hesselstad er yfir konditor á hinum víðfræga Artipelag í Svíþjóð.

    Artipelag er stórmerkilegur staður, gestir fara á listsýningar og borða veitingarnar með útsýni yfir Baggensfjärden. Allir eftirréttir, sætindi og brauð eru búin til af grunni og Annie tengir ávallt eftirréttina sem hún býr til við listviðburði og sýningar sem eru standa yfir hverju sinni.

    Hún hefur starfað á veitingastaðnum undanfarin sjö ár og í fastri stöðu sem yfir eftirréttakokkur frá árinu 2019 ásamt því að sjá um úrval eftirrétta og kaka á Bådan Café & Pâtisserie sem er á jarðhæð safnsins.

    Annie kom til Íslands síðasta vetur á vegum íslenska kokkalandsliðsins til þess að kenna handverkið en hún hefur vakið mikla eftirtekt fyrir sterkar áherslur á gæði og uppruna hráefnis og skapandi vinnubrögð. Hún var hluti af sænska kokkalandsliðinu sem keppti á Ólympíuleikunum 2016.

    Árið 2022 var hún fengin til að hanna eftirréttinn fyrir Nóbelsverðlaunahátíðina í Stokkhólmi og er einmitt um þessar mundir að fast við það verkefni í annað sinn. Við hittum Annie og ræddum við hana um starfið.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband