Gott samstarf atvinnulífs og skóla á Sauðárkróki

Nemendur í tréiðnaðardeild Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki byggja hús frá grunni og setja í þau innréttingar í nánu samstarfi við atvinnulífið. Iðan fór á vettvang og ræddi við Óskar Már Atlason, deildarstjóra Tréiðnaðardeildar FNV:

    „Þetta heldur okkur á tánum og við útskrifum nemendur sem eru tilbúnir til að fara beint að vinna,“ segir Óskar Már en hluti náms í húsasmíði við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki felst í því að byggja timburhús sem unnin eru í samvinnu við fyrirtæki í héraðinu.

    „Með því að gera þetta svona þá erum við í raun alltaf í takt við tímann. Við fáum þessi nýju efni sem verktakarnir eru að vinna með og það nýjasta sem er á markaðnum. Þeir eru oft að prufa eitthvað sjálfir og prófa það hér og við förum á námskeið með þeim. Þetta heldur okkur á tánum, nemendum á tánum og þegar nemendur fara frá okkur þá eru þau tilbúin að fara beint að vinna,“ segir Óskar Már sem segir námið spennandi fyrir alla sem að því koma og í stöðugri þróun. Samvinnan felist í því að kennarar deildarinnar annist kennslu og stýri vinnu nemenda en fyrirtækin útvegi allan efnivið, teikningar og sjái einnig um byggingastjórn og meistaraábyrgð.

    Aðsókn að skólanum er mikil og er deildin fullskipuð bæði í dagskóla og helgarnámi.

    Nemendur byggja húsin frá grunni og fá oft að gera innréttingar í þau líka. Óskar Már segir skipta miklu máli að hafa fjölbreytt og síbreytileg verkefni.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband