Iðan tekur ekki lengur við umsóknum um viðurkenningu menntunar iðnaðarmanna
Frá og með 1. febrúar nk. tekur ENIC NARIC skrifstofan við afgreiðslu umsókna um viðurkenningu á menntun og starfsreynslu erlendra iðnaðarmanna.
Framvegis þurfa umsækjendur að beina umsóknum um mat og viðurkenningu á erlendu námi til ENIC NARIC skrifstofunnar í gegnum vefinn EnicNaric.is. Starfsmenn ENIC NARIC ganga úr skugga um að öll tilskilin gögn fylgi og senda svo umsóknina til umsagnar hjá annað hvort Iðunni fræðslusetri eða Rafmennt, eftir því um hvaða starfsgrein er að ræða.
Þegar umsögn fagaðila liggur fyrir afgreiðir ENIC NARIC skrifstofan umsóknina og leiðbeinir umsækjendum eftir atvikum um næstu skref, t.d. ef niðurstaðan leiðir til útgáfu sérstaks leyfisbréfs sem veitir rétt til starfa í löggiltri iðn hér á landi.
Þeir sem njóta góðs af þjónustunni eru bæði ríkisborgarar frá löndum EES-svæðisins og þegnar ríkja utan EES.