Þjálfun fagfólks á heimsmælikvarða

Markviss þjálfun fagfólks í Mount Lucas fræðslumiðstöðinni á Írlandi hefur vakið eftirtekt fyrir framsækni og góðan árangur. Markmið Mount Lucas er að stuðla að góðum árangri við að fylgja eftir húsnæðisáætlun Íra:Húsnæði fyrir alla.

    Starfsfólk Iðunnar fræðsluseturs heimsótti nýlega símenntunarmiðstöð bygginga-og mannvirkjagreina í Mount Lucas á Írlandi, Ferðin var skipulögð af Menntamálastofnun Írlands, QQI. og var styrkt af Erasmus+.

    Mount Lucas varð fyrir valinu vegna þeirrar einstöku starfsemi sem þar fer fram á sviði iðn-og starfsnáms en fræðslusetrið hefur fengið ýmsar viðurkenningar og vottanir fyrir störf sín. Mount Lucas starfar fyrir atvinnulífið og stjórnvöld og þjónar launþegum, fyrirtækjum og atvinnuleitendum. 

    Samningsbundið iðnnám í uppsetningu vinnupalla 

    Eftir margra ára þróunarvinnu náði fræðslusetrið að fá tveggja ára samningsbundið nám (Scaffolding Apprenticship) viðurkennt til réttinda í uppsetningu vinnupalla. Nemendur eru á námsamning hjá fyrirtæki, mæta í sérstaka þjálfun og kennslu einn dag í viku í tvö ár. Námið er þarft og hefur skilað frábærum fagmönnum sem hafa það hlutverk að sjá setja upp, sjá um vinnupalla og ekki síst tryggja öryggi á vinnustað.

    Kennslustofa á hjólum, vinnuvélahermar og verkleg kennsluaðstaða á heimsmælikvarða

    Mount Lucas býður upp á sjö mismunandi námskeiðsleiðir sem fylgja viðurkenndum stöðlum um nærri kolefnislausar byggingar (Nearly Zero – Energy buildings (NZEB). Námið er bæði staðbundið og á vefnum og aðstæður fyrir verklega kennslu er framúrskarandi. Fræðslumiðstöðin er sett upp með öllu því sem til þarf og sérstök kennslustofa er helguð hermun vinnuvéla. Þar getur fólk þjálfað upp hæfni við sérlega erfið verkefni og misjöfn veðurskilyrði í vinnuvélahermum. Sérstaka athygli vekur sérútbúin vöruflutningabifreið sem er búið að breyta í færanlega kennslustofu. 

    Mount Lucas hefur yfirumsjón með kennslu og þjálfun við húsnæðisáætlun Írlands: Húsnæði fyrir alla, þar sem hagkvæmni og sjálfbærni eru í fyrirrúmi.  

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband