Auglýsing um sveinspróf

Stefnir þú á sveinspróf?

    Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í janúar, febrúar og mars ef næg þátttaka næst:

     

    Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn í janúar 2024. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2023.

    Í byggingagreinum í janúar 2024. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2023.

    Í vélvirkjun í febrúar 2024. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2023.

    Í rennismíði febrúar - mars 2024. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2024.

    Í snyrtifræði í febrúar - mars 2024. Umsóknarfrestur er til 5. janúar 2024.

    Í bifvélavirkjun í febrúar - mars 2024. Umsóknarfrestur er til 5. janúar 2024.

    Í hársnyrtiiðn í febrúar - mars 2024. Umsóknarfrestur er til 5. janúar 2024.

    Nánari dagsetningar verða birtar á vef Iðunnar fræðsluseturs um leið og þær liggja fyrir.

    Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit eða staðfestingu frá skóla úr rafrænni ferilbók. Einnig burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2023. Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

    Umsóknareyðublað má nálgast hér.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband