Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði

Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í nóvember 2022. Námskeiðið er kennt í fjarkennslu.

    Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í nóvember 2022 og verður námskeiðið í fjarkennslu. Opnað verður fyrir fyrirlestra mánudaginn 14. nóvember og verða þeir opnir til 26. nóvember. Námskeiðinu lýkur með prófi laugardaginn 26. nóvember, (allar dagsetningar eru settar fram með fyrirvara um breytingar).

    Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til endurmenntunar án prófs.

    Umsókn fer fram á mínum síðum vefs Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt fylgigögnum eigi síðar en föstudaginn 31. október 2022.

    Fylgigögn eru:

    • afriti af prófskírteini umsækjanda
    • vottorði frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti um réttindi til starfsheitis
    • vottorði/um um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1.mgr. 26.gr. laga um mannvirki

    (ath. öllum gögnum skilað inn stafrænt)

    Nánari upplýsingar veitir Birgir Hólm í síma 663 7140.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband