Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í mars 2022. Námskeiðið er kennt í fjarkennslu.
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í mars 2022 og verður námskeiðið í fjarkennslu. Opnað verður fyrir fyrirlestra þriðjudaginn 15. mars og verða þeir opnir til 2. apríl. Námskeiðinu lýkur með prófi laugardaginn 2. apríl, (allar dagsetningar eru settar fram með fyrirvara um breytingar).
Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til endurmenntunar án prófs.
Umsókn fer fram á vef IÐUNNAR fræðsluseturs ásamt fylgigögnum eigi síðar en föstudaginn 25. febrúar 2022.
Fylgigögn eru:
- afriti af prófskírteini umsækjanda
- vottorði frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti um réttindi til starfsheitis
- vottorði/um um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1.mgr. 26.gr. laga um mannvirki
(ath. öllum gögnum skilað inn stafrænt)
Nánari upplýsingar veitir Birgir Hólm í síma 663 7140.