Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði

Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í mars 2021. Námskeiðið er kennt í fjarkennslu.

    Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í mars 2021 og verður námskeiðið í fjarkennslu. Opnað verður fyrir fyrirlestra mánudaginn 15. mars og verða þeir opnir til og með 27. mars. Námskeiðinu lýkur með staðbundnu rafrænu prófi laugardaginn 27. mars 2021 (allar dagsetningar eru settar fram með fyrirvara um breytingar).

    Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til endurmenntunar án prófs. 

    Umsókn fer fram á vef IÐUNNAR fræðsluseturs ásamt fylgigögnum eigi síðar en þriðjudaginn 2. mars 2021.

    Fylgigögn eru:

    • afriti af prófskírteini umsækjanda
    • vottorði frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti um réttindi til starfsheitis
    • vottorði/um um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1.mgr. 26.gr. laga um mannvirki

    (ath. öllum gögnum skilað inn stafrænt)

    Nánari upplýsingar veitir Birgir Hólm í síma 663 7140.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband