Erasmus - eitthvað sem allir iðnnemar og nýsveinar ættu að kynna sér
Í tilefni af evrópskri starfsmenntaviku beinum við kastljósinu að Erasmus námsstyrkjum fyrir iðnnema og nýsveina
![Aðalsteinn Ásmundarson](/library/Myndir/Frettir/2020/adalsteinn-asmundarson.jpg?proc=newsbig2)
Evrópska starfsmenntavikan er árlegur viðburður þar sem markmiðið er að kynna og efla starfsnám og þjálfun. IÐAN tekur reglulega þátt og í ár beinum við kastljósinu að Erasmus námsstyrkjum og hvernig þeir geta nýst iðnnemum og nýsveinum.
Aðalsteinn Ásmundarson er vélvirki og nýsveinn í húsasmíði og einn fjölmargra sem hafa nýtt sér þennan styrkjakost. Aðalsteinn sótti nýverið námskeið um svo nefnd Passive hús við South West Collage á N-Írlandi á Erasmus styrk. Okkur þótti þetta forvitnilegt og ekki síst áhugaverð viðbót við umræðuna um sjálfbærni í húsasmíði. Við hringdum því austur og áttum gott spjall við Aðalstein sem hvetur aðra til að kynna sér möguleika Erasmus áætlunarinnar á sínum vettvangi.