Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í janúar, febrúar og mars ef næg þátttaka næst

    • Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn í janúar 2021. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2020
    • Í byggingagreinum í janúar 2021. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2020
    • Í vélvirkjun í febrúar – mars 2021. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2020
    • Í snyrtifræði í febrúar – mars 2021. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2021
    • Í bifvélavirkjun í janúar – febrúar 2021. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2020
    • Í hársnyrtiiðn í febrúar – mars 2021. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2021.

    Nánari dagsetningar verða birtar á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs um leið og þær liggja fyrir Með umsókn skal leggja fram afrit námssamnings, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2020.

    Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

    Umsóknareyðublöð má nálgast á vef okkar og á skrifstofunni. IÐAN - fræðslusetur, Vatnagörðum 20, 104 Reykjavík, sími: 590 6400, netfang: idan@idan.is

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband