Umsóknarfrestur í sveinspróf rennur út 1. maí!

Minnum á að umsóknarfrestur í sveinspróf rennur út 1. maí. Hvetjum nema til að ganga frá umsóknum sínum sem fyrst.

    Nánari upplýsingar um tímasetningar á prófum í einstaka iðngreinum verður auglýstur á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs www.idan.is þegar þær upplýsingar liggja fyrir.

    Próftakar sem þurfa á sérúrræði að halda í sveinsprófi eru hvattir til að sækja um viðeigandi úrræði til náms- og starfsráðgjafa IÐUNNAR fyrir 1. maí nk. á netfangið radgjof@idan.is Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast vorið 2020.

    Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

    Væntanlegir próftakar eru hvattir til að fylgjast með nánari tilkynningum um framkvæmd sveinsprófanna á heimasíðu IÐUNNAR en nýjar fréttir verða uppfærðar á heimasíðunni um leið og þær liggja fyrir.

    Tilkynning frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu varðandi sveinspróf.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband