Öryggismál eru gæðamál
Mannvirkjaráð Samtaka iðnaðarins og IÐAN fræðslusetur boða til fjórða fundar í fundaröð um gæðastjórnun í byggingariðnaði þar sem fjallað verður um öryggismál sem hluta af gæðastjórnun fyrirtækja.
Mannvirkjaráð Samtaka iðnaðarins og IÐAN fræðslusetur boða til fjórða fundar í fundaröð um gæðastjórnun í byggingariðnaði þar sem fjallað verður um öryggismál sem hluta af gæðastjórnun fyrirtækja.
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 28. mars kl. 8.30–10.00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 1 hæð.
Markmið fundaraðarinnar er að efla og bæta umfjöllun og fræðslu um gæðamál í bygginga- og mannvirkjagerð og búa til vettvang fyrir umræðu um þessi mikilvægu málefni iðnaðarins.
Fundarstjóri er Kristján Daníel Sigurbergsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði Samtaka iðnaðarins.
Dagskrá
- Reynir Guðjónsson, öryggisstjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur
- Anna Jóna Kjartansdóttir, öryggis- og gæðastjóri hjá Ístak
- Bergur Helgason, gæða- og öryggisstjóri hjá ÞG verk
- Umræður
Boðið verður upp á veitingar frá kl. 8.15. Allir eru velkomnir en óskað er eftir skráningu.