Dagur prents og miðlunar er 25. janúar
Dagur prents og miðlunar verður haldinn 25. janúar nk í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs að Vatnagörðum 20.
Dagur prents og miðlunar er haldinn í fimmta sinn þann 25. janúar nk. Eins og áður blöndum við saman fræðslu og skemmtun í hæfilegu magni.
Hafist verður handa kl. 15.00 með fyrirlestrum í fjórum stofum. Þá opnar líka birgjagólf þar sem fyrirtæki tengd prentiðnaði sýna tæki og hráefni. Að lokinn fræðsludagskrá kl. 18.00 verður Ari Eldjárn með uppistand síðan er boðið upp á léttar veitingar.