Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í desember, janúar, febrúar og mars nk. ef næg þátttaka næst:
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í desember, janúar, febrúar og mars ef næg þátttaka næst:
- Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn í desember Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
- Í byggingagreinum í des/jan. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2018
- Í málmiðngreinum í febrúar/mars. Umsóknarfrestur til 15. janúar 2019
- Í snyrtifræði í febrúar/mars. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2019
- Í bíliðngreinum í janúar/febrúar. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2018
- Í hársnyrtiiðn í febrúar/mars. Umsóknarfrestur til 15. janúar 2019.
Nánari dagsetningar verða birtar á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs jafnóðum og þær liggja fyrir Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2018.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast hér á vefnum okkar og á skrifstofunni að Vatnagörðum 20 Reykjavík.