Skráning - Hönnun hleðsluveggja
Þetta námskeið er fyrir þau sem fást við að hanna innveggi í húsum og vilja nota frauðsteypu (gasbeton) hleðslusteina til verksins. Markmið þess er að kynna fyrir hönnuðum þá möguleika sem milliveggjasteinar bjóða upp á og helstu atriði varðandi uppsetningu og frágan. Fjallað verður um gerð og eiginleika hleðslusteina, notkunarsvið og vottanir. Farið yfir þætti sem koma til álita við val á hönnun innvggja úr hleðslusteinum. Ennfremur undirbúning hleðslunnar, réttar staðsetningar, lóðréttar og láréttar línur. Farið yfir algeng mistök sem verða við hönnun og framkvæmd.
Á námskeiðinu verða notaðir Lemga milliveggjasteinar úr frauðsteypu frá þýska fyrirtækinu Schlamann og munu sérfræðingar frá þeim þeir Johannes Bister Gebietsleiter svæðisstjóri og Hinrich Schulze Dipl.-Ing leiðbeina á námskeiðinu. Námskeiðið fer fram á ensku.
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Steypustöðina