Staðnám
Skráning - Grænmetisréttir í mötuneytum og stóreldhúsum
Markmið námskeiðsins er að koma til móts við kröfuna um fjölbreytt, girnilegt og gómsætt grænmetisfæði í mötuneytum og stóreldhúsum. Námskeiðið er í formi sýnikennslu og smakks. Fjölbreyttir réttir verða eldaðir, sýnd handtök og mismunandi leiðir til að nýta hráefni sem best og draga úr sóun. Veglegt uppskriftahefti fylgir með námskeiðinu.