image description
Staðnám

Skráning - Trjáfellingar og grisjun með keðjusög

Þetta námskeið hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fyrsti dagur er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu. Farið verður yfir leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inn á grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Farið verður yfir það hvernig framkvæma eigi einfalda bilanaleit í söginni, ásamt hefðbundnu viðhaldi, þrif sagar og brýningu keðju. Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins. Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

Þátttakandi
Upplýsingar um greiðslu
Verð: 79000 kr.
Verð til aðila IÐUNNAR: 20000 kr.

Upplýsingar um greiðanda

Skilmálar

IÐAN áskilur sér rétt til að innheimta helming af námskeiðsgjaldi ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið en tilkynnir ekki forföll til IÐUNNAR á netfangið idan@idan.is eða í síma 590 6400 að minnsta kosti 24 klukkustundum áður en námskeið hefst.

* Nauðsynlegar upplýsingar

Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband