image description
Staðnám

Skráning - Hleðsluveggir

Þetta námskeið er fyrir þau sem fást við að hlaða innveggi í húsum úr frauðsteypu (gasbeton) hleðslusteinum. Markmið þess er að skerpa á helstu áhersluatriðum varðandi uppsetningu og frágang. Fjallað verður um gerð og eiginleika hleðslusteina, notkunarsvið og vottanir. Farið yfir undirbúning hleðslunnar, réttar staðsetningar, lóðréttar og láréttar línur. Sérstaklega verður farið yfir algeng mistök sem verða við hleðslu og hverngi megi koma í veg fyrir þau. Á námskeiðinu verða notaðir Lemga milliveggjasteinar úr frauðsteypu frá þýska fyrirtækinu Schlamann og munu sérfræðingar frá þeim leiðbeina á námskeiðinu. Námskeiðið fer fram á ensku og verður boðið upp á þýðingar í íslensku. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Steypustöðina

Þátttakandi
Upplýsingar um greiðslu
Verð: 24000 kr.
Verð til aðila IÐUNNAR: 8000 kr.

Upplýsingar um greiðanda

Skilmálar

IÐAN áskilur sér rétt til að innheimta helming af námskeiðsgjaldi ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið en tilkynnir ekki forföll til IÐUNNAR á netfangið idan@idan.is eða í síma 590 6400 að minnsta kosti 24 klukkustundum áður en námskeið hefst.

* Nauðsynlegar upplýsingar

Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband