Staðnám
Skráning - Ferskasti salatbarinn, bragðgóð fjölbreytni
Markmið námskeiðsins er að auka færni starfsfólks að setja upp fjölbreytta, ferska og bragðgóða salatbari. Á námskeiðinu er farið yfir meðhöndlun hráefnis, hugmyndir kynntar um hvernig megi breyta áherslum og uppsetningu á salatbar á einföldan hátt, fjallað um samsetningu á hráfæðissalötum, vegan salöt og almennt um góða nýtingu á hráefni og fl. Námskeiðið er á formi sýnikennslu og byggir umræðum þátttakenda og smakki.