image description
Fjarnám

Skráning - Flokkun á timbri - útlitsflokkun og styrkflokkun

Útlitsflokkun og styrkflokkun Námskeiðið er um gæði timburs í útliti og styrk ætlað ölum sem vinna með timbur Markmið þess er annars vegar að nemendur læri hvernig velja á timbur í réttum gæðum fyrir tiltekna notkun og hins vegar hvernig það er flokkað eftir styrkleika. Einnig hvernig eigi að umgangast á timbrið og verja það gegn veðrun. Í námskeiðinu verður fjallað um timbur unnið úr barrvið og hvernig það er notað í byggingum. Farið verður yfir hvernig timbur er valið og varðveitt og hvaða kröfur er gerðar til gæða þess út frá notkun og byggingarhlutum. Eins verður fjallað um aðferðir til að meta gæði timburs, þ.e. hvernig timbur er flokkað eftir útliti fyrir burðavið eða vélflokka, hvað stýrir tlitsflokkun fyrir byggingartimbur og hvernig efnisgallar eru metnir og áhrif þeirra á gæðaflokkun. Námskeiðið fer að öllu leyti fram á netinu. Fyrir þau sem vilja öðlast réttindi til að styrkflokka timbur verða haldin próf í húsnæði Iðunnar. Í prófunum er farið í gegnum búnt af óflokkuðu timbri og þátttákendur styrkflokka það. Námskeiðsgögn eru þessi: Fyrirlestrar Eiríks Þorsteinssonar á myndböndum. Gæðafjalir - viðskiptaflokkun á timbri úr barrtrjám Styrkflokkun timburs Rb blað RBHi 1.01.2 – 1998

Þátttakandi
Upplýsingar um greiðslu
Verð: 48000 kr.
Verð til aðila IÐUNNAR: 48000 kr.

Upplýsingar um greiðanda

Skilmálar

IÐAN áskilur sér rétt til að innheimta helming af námskeiðsgjaldi ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið en tilkynnir ekki forföll til IÐUNNAR á netfangið idan@idan.is eða í síma 590 6400 að minnsta kosti 24 klukkustundum áður en námskeið hefst.

* Nauðsynlegar upplýsingar

Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband