Fjarnám
Skráning - Fusion 360 - á þínum hraða þegar þér hentar - Tölvuteikning
Frábært námskeið fyrir alla þá sem vilja getað teiknað í tölvu án mikils tilkostnaðar. Fusion 360 forritið er hægt að nálgast endurgjaldslaust og fá nemendur kennslu í að setja það upp. Námskeiðið er byggt upp með þarfir málm- og véltæknigreina í huga en það nýtist öllum sem hafa gaman af því að hanna og teikna upp hugmyndir sínar. Á námskeiðinu er sér kafli um hvernig á að vista teikningar til þrívíddarprentunar. Fusion 360 er forrit frá Autodesk. Vinnuumhverfið er því kunnuglegt þeim sem hafa unnið í AutoCad og Inventor.