Fjarnám
Fusion 360
Blikksmiðir, vélvirkjar, vélfræðingar, stálsmiðir og fleiri.
Frábært námskeið fyrir alla þá sem vilja getað teiknað í tölvu án mikils tilkostnaðar. Fusion 360 forritið er hægt að nálgast endurgjaldslaust og fá nemendur kennslu í að setja það upp.
Námskeiðið er byggt upp með þarfir málm- og véltæknigreina í huga en það nýtist öllum sem hafa gaman af því að hanna og teikna upp hugmyndir sínar.
Á námskeiðinu er sér kafli um hvernig á að vista teikningar til þrívíddarprentunar.Fusion 360 er forrit frá Autodesk. Vinnuumhverfið er því kunnuglegt þeim sem hafa unnið í AutoCad og Inventor.
Uppbygging námskeiðsins:
- Fusion 360 – Skráning, niðurhal og uppsetning. (U.þ.b. 10 mínútur)
- Teiknivinna – grunnur. (U.þ.b. 2 klst.)
- Vistun og skipulag
- Viðmót
- Skissur og togun
- Skissur og vörpun
- Göt, fylki, vinnulínur og rúningur
- Sveifla og speglun
- Vistun til þrívíddarprentunar
- Vinnuteikningar
- Verkefni og lausn
- Teiknivinna – framhald (U.þ.b. 1.klst) grunnur (U.þ.b. 2 klst)
- Föll og gildi
- Fjötrar
- Málmur og beygjur
- Samskeiti
- Hreyfimyndir
Kennari: Ingi Bekk