Fjarnám
Umhverfisstefna
Sigríður Ósk Bjarnadóttir fer yfir hvernig fyrirtæki geta sett sér skýra umhverfisstefnu. Sigríður eða Sirrý er framkvæmdastjóri umhverfismála hjá eignarhaldsfélaginu Hornsteini ehf. Sirrý lauk doktorsprófi í byggingarverkfræði árið 2012 og hefur skrifað fjölda ritrýndra fræðigreina og bókakafla varðandi loftslagsmál og aðlögunarhæfni bygginga og innviða.
Ávinningur námskeiðsins er dýpri þekking á umhverfisstarfsemi fyrirtækja og hvernig mætti nýta sér aðferðafræðina í starfi.
Námskeiðinu er skipt í eftirfarandi kafla:
● Umhverfisstjórnun
● Umhverfisstefna
● Umhverfisþættir í rekstri
● Markmiðasetning
● Aðgerðaráætlun
● Hvatar