Staðnám

Torf- og grjóthleðsla

Byggingamenn

Námskeiðið er ætlað öllum þeim er vilja læra hvernig hægt er að byggja úr torfi og grjóti hvort sem um ræðir veggi, kartöflukofa eða önnur smærri mannvirki.

Þátttakendur fá innsýn inn í íslenska byggingararfleið og kynnast verklagi við byggingu úr hefðbundnu íslensku efni. Fjallað verður um íslenska torfbæinn, uppbyggingu hans, efnisval og framkvæmd. Einnig verður fjallað um hleðslu frístandandi veggja og stoðveggja úr torfi og grjóti.

Lögð áhersla á verklega kennslu. Hlaðin verður veggur ofl. á námskeiðinu.

Kennari: Guðjón Kristinsson torf- og grjóthleðslumeistari, skrúðgarðyrkjumaður og stundarkennari við Garðyrkjuskólann - FSu.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
08.05.2025fim.09:0017:00Garðyrkjuskólinn, Reykjum Ölfusi
09.05.2025fös.09:0016:00Garðyrkjuskólinn, Reykjum Ölfusi
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband