IMI Rafbílanámskeið þrep 4 - Bilanagreining og viðgerðir í lifandi kerfi
Bifvélavirkjkar
Fyrir hvern er þetta námskeið?
Námskeiðið er hannað til að gefa þeim sem vinna við viðgerðir og bilanagreiningu raf/tvinn bíla nægjanlega þekkingu hæfni til að vinna í lifandi kerfi s.s. þegar unnið er við háspennu rafhlöður en þar er hættan einmitt mest.
Þessi vottun hefur verið þróuð í nánu samstarfi við sérfræðinga í bílgreininni, rafbílaframleiðendur, fræðsluaðila og IMI
Skilyrði fyrir þátttöku í námskeiði
Að hafa lokið IMI rafbílanámskeiði á þrepi 2.2. og 3 Einnig er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi töluverða almenna þekkingu á bifreiðum og starfi innan bílgreinarinnar. Æskilegt er að þátttakandi hafi sveinspróf innan bílgreinarinnar eða sambærilega menntun. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi skilyrði til þátttöku hafðu samband við okkur og við skoðum málið.
Hvað mun þátttakandinn læra á þessu námskeiði
Námsefni þessa námskeiðs hefur verið hannað til þess að gefa þátttakendum þá þekkingu og hæfni sem þarf til að sinna bilanagreiningu, prófunum og viðgerðum raf-, tengiltvinn og tvinn bíla á öruggan hátt ( í lifandi spennu). Á námskeiðinu mun þátttakandi öðlast þekkingu og hæfni varðandi:
- Uppbyggingu háspennurafhlaða
- Að skipta út einingum/sellum úr háspennurafhlöðu
- Virkni, bilanagreiningu og viðgerð í háspennukerfum(í lifandi spennu).
Þátttakendur sem ljúka þessu námskeiði mun því öðlast mikla þekkingu um virkni háspennurafhlaða raf/tvinn bíla og hvernig staðið að viðgerðum og útskiptum á hlutum innan háspennukerfisins(í lifandi spennu).
Námsmat
Námskeiðið er vottað af Institute of the Motor Industry (IMI) í Bretlandi og lýkur með tveim verklegum æfingum og skriflegu verkefni.
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
08.04.2025 | þri. | 09:00 | 16:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |
09.04.2025 | mið. | 09:00 | 16:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |
10.04.2025 | fim. | 09:00 | 16:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |