Staðnám

Úr mat í mold

Jarðgerð/safnhaugagerð/bokashi/eldhúsjarðgerð/molta

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á endurnýtingu lífrænna afurða sem til falla á heimilum og görðum.

Á námskeiðinu verður fjallað um undirstöðuatriði jarðgerðar. Fjallað verður um hvaða hráefni er hægt að nýta til jarðgerðar og æskileg blöndunarhlutföll þeirra. Farið verður yfir uppbyggingu, meðhöndlun og umhirðu jarðgerðar/safnhaugs með tilliti til þess hvernig ná megi jöfnu og góðu niðurbroti. 

Lokaafurð jarðgerðar er kjörinn áburður til notkunar í heimilisgarðinn, landgræðslu eða skógræktar.

Hluti námskeiðsins er skoðun á moltu frá maí og ágúst 2024. Námskeiðgestir taka þátt í að útbúa lífrænar afurðir til niðurbrots með bokashi aðferðinni (loftfirrt niðurbrot) og að útbúa loftháða jarðgerð.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Garðyrkjuskólann hjá Fjölbrautaskóla Suðurlands

Kennari er Svala Sigurgeirsdóttir líffræðingur og deildarfulltrúi hjá Garðyrkjuskólanum - FSu


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
05.04.2025lau.09:0015:00Garðyrkjuskólinn, Reykjum Ölfusi
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband