Staðnám

PitStop Pro - yfirferð skjala fyrir prentun

starfsfólk í forvinnslu og frágangi prentverka

Þetta námskeið er ítarleg kynning á PitStop Pro, öflugu verkfæri fyrir grafíska miðlara sem gerir þeim kleift að yfirfara (preflight), lagfæra og breyta PDF skjölum fyrir prentun. Þátttakendur læra að greina villur í skjölum, leiðrétta sjálfkrafa algeng mistök og tryggja að skrár séu hæfar til prentunar. Á námskeiðinu er lögð áhersla á skilvirkni í prentferlum með notkun staðlaðra vinnubragða, svo sem leit að villum, skýrslugerð og ritstýringar. 

Markmið námskeiðsins:

  • Kynna helstu eiginleika PitStop Pro.
  • Kenna þátttakendum að yfirfara og greina PDF skjöl.
  • Þjálfa færni í sjálfvirkri lagfæringu skjala og úrbótum á villum.
  • Auka skilvirkni í prentferlum með notkun PitStop Pro.

Fyrir hverja:
Námskeiðið hentar þeim sem nota PitStop Pró í sínum verkferlum en einnig öllum sem starfa við prentun, grafíska miðlun eða útgáfu og vilja bæta færni sína í meðhöndlun PDF skjala fyrir prentun.

Forkröfur:
Grunnþekking á PDF skjölum og almennum hugbúnaðarverkfærum fyrir prentmiðlun er æskileg.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
02.04.2025mið.17:0020:30IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
03.04.2025fim.17:0020:30IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband