Staðnám
Varðveisla eldri húsa
Námskeiðið er ætlað fag- og áhugafólki um viðgerðir og viðhald eldri húsa.
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum innsýn í helstu þætti er varða endurbætur og varðveislu eldri húsa.
Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um lög og reglugerðir er varða viðgerðir og viðhald á vernduðum húsum. Farið verður yfir helstu tímabil og einkenni íslenskrar byggingarsögu ásamt byggingartæknilegum áskorunum. Helstu áskoranir varðandi viðgerðir og framkvæmd þeirra verða einnig til umfjölunar.
Námskeiðið verður haldið á Árbæjarsafni og verða safnhúsin þar skoðuð út frá byggingartækni og efnisnotkun.
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
28.03.2025 | fös. | 13:00 | 18:00 | Borgarsögusafn - Árbæjarsafni |
29.03.2025 | lau. | 09:00 | 15:00 | Borgarsögusafn - Árbæjarsafni |