Gervigreind við byggingaframkvæmdir
Þetta námskeið er fyrir starfsfólk í bygginga- og mannvirkjagreinum sem hefur áhuga á að kynna sér hvernig gervigreind er notuð og hvernig má nýta hana við störf í byggingariðnaði.
Gervigreind hefur áhrif á dagleg störf allra í byggingariðnaði. Fjallað verður um notkun gervigreindar við framkvæmdir, vinnu iðnaðarmanna og þeirra sem stjórna byggingaverkefnum. Einnig samskipti milli aðila og rýni hönnunargagna ásamt áætlanagerð.
Námskeiðið er að hluta verklegt þar sem þátttakendur læra að nota ChatGPT og önnur gervigreindarverkfæri til að leysa raunveruleg verkefni úr byggingariðnaðinum. Sérstök áhersla er lögð á að skilja bæði styrkleika og takmarkanir ChatGPT svo hægt sé að nýta tæknina á ábyrgan og skilvirkan hátt.
Leiðbeinandi er Hjörtur Sigurðsson verkfræðingur hjá Mynstra. Hann hefur um árabil unnið að því að innleiða stafræna tækni í byggingariðnaðinn, með sérstakri áherslu á BIM, gervigreind og stafræn vinnubrögð.
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
25.03.2025 | þri. | 09:00 | 12:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |