Staðnám
Matjurtaræktun í óupphituðum gróðurhúsum
Námskeið í samvinnu við Garðyrkjuskólann
Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á ræktun í köldum/óupphituðum gróðurhúsum, hvort sem menn eiga slík húsakynni eða hafa uppi áform um að eignast þau.
Helstu atriði sem farið verður yfir á námskeiðinu:
- Ýmsar gróðurhúsagerðir.
- Staðsetning húsanna út frá birtu, skjóli, aðgangi að vatni og rafmagni.
- Helstu nýtingarmöguleikar kaldra (óupphitaðra) gróðurhúsa.
- Mismunandi frágangur gólfs.
- Jarðvegur, jarðvinnsla og áburðargjöf.
- Sáning og uppeldi.
- Tegundir sem henta til ræktunar, aðferðir við ræktun ólíkra tegunda.
- Meindýr, sjúkdómar og varnir.
- Þrif og sótthreinsun húsa og áhalda.
- Hvernig dreifa má uppskerunni á lengra tímabil og nýta húsin sem best.
- Notkunarmöguleikar húsanna yfir veturinn, vetrarfrágangur
Verkleg æfing í sáningu, dreifsetningu og pottun. Nemendur fá plöntur í potti með sér heim.
Kennari er Ingólfur Guðnason garðyrkjufræðingur og brautarstjóri garðyrkjuframleiðslu hjá Garðyrkjuskólanum - FSu(Fjölbrautaskóla Suðurlands).
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
22.03.2025 | lau. | 09:00 | 15:00 | Garðyrkjuskólinn, Reykjum Ölfusi |