Staðnám (fjarnám í boði)

Hjón og hús – áratugir í farsælu sambandi

Fræðslufundur Húsverndarstofu

Húsverndarstofa býður til fræðslufundar í Lækjargötuhúsi á Árbæjarsafni um hvernig gömul hús eru gerð upp. Til að segja okkur frá reynslu sinni koma þau Þórunn Elísabet Sveinsdóttir og Tómas Jónsson íbúar að Miðstræti 10 í Reykjavík. Frítt inn og öll velkomin!  Einnig verður hægt að sækja fundinn í streymi.
Þetta sögufræga hús í Miðstræti 10 var teiknað og reist árið 1904 af Einari J. Pálssyni og er eitt af glæsilegri timburhúsunum í Reykjavík frá þessum tíma. Á því er mikið skraut og útskurður og ber það íslenskum aldamótasmiðum mjög gott vitni.
Hjónin Þórunn Elísabet Sveinsdóttir og Tómas Jónsson hafa áratuga reynslu af vinnu við varðveislu hússins og hafa gert húsið upp á einstakan hátt með ævintýralegu yfirbragði innanhúss. Það má sannarlega segja að húsið sé með sál.
Húsverndarstofa er fyrir húseigendur, iðnaðarmenn, arkitekta, námsmenn og allt áhugafólk um byggingarsögu og húsvernd. Að henni standa Iðan fræðslusetur, Minjastofnun Íslands og Borgarsögusafn Reykjavíkur.
Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.
Öll bílastæði eru ókeypis.


Sjá viðburð á Facebook hér


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
27.02.2025fim.17:0018:30Borgarsögusafn - Árbæjarsafni
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband