Staðnám
Hagnýtar gervigreindarlausnir í samstarfi við Endurmenntun Háskóla íslands
Þetta námskeið hentar öllu fagfólki sem vill nýta sér ChatGPT í lífi og starfi
Námskeiðið Hagnýtar gervigreindarlausnir er haldið af Endurmenntun Háskóla Íslands. Iðan fræðslusetur býður félagsfólki sínu námskeiðið á niðurgreiddu verði fáist laus pláss. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kynna fjölbreyttar leiðir til að nýta ChatGPT. Þátttakendur fá góða undirstöðuþekkingu og yfirsýn á möguleikum forritsins í fjölbreyttum verkefnum. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist nægan skilning til að yfirfæra sína þekkingu á eigin verkefni í lífi og starfi.
Dagur 1 - Grunnur og könnun möguleika:
Á fyrsta degi námskeiðsins er lögð áhersla á skilning á spunagreind og ChatGPT. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur skilji eða hafi notað ChatGPT eða önnur gervigreindartól. Byrjað er frá grunni með almennri kynningu á ChatGPT, notendaviðmótinu, stillingum og helstu hugtök útskýrð. Eftir það er farið yfir hvernig ChatGPT getur búið til og verið notað með myndrænu efni. Farið er yfir mörg sýnidæmi og þátttakendur gera einfaldar en fjölbreyttar æfingar undir leiðsögn kennara til að sjá hveru yfirgripsmikil þekking og færni ChatGPT er á ýmsum sviðum og til að læra áhrifaríkar leiðir til að nota tæknina.
Dagur 2 - Farið dýpra í hagnýt verkefni:
Annar dagurinn snýst um að læra á hin ýmsu tól sem ChatGPT býður upp á. Byrjað er á því að skoða notkun á ChatGPT í öðrum viðmótum en á vefnum. Farið er yfir takmarkanir og ókosti tólsins og útskýrt hvernig er gagnlegt að hugsa um tæknina þannig að þátttakendur skilji hvernig ChatGPT er frábrugðið annarri tækni, t.d: leitarvélum, reiknivélum og þýðingartólum. Þá er farið yfir flóknari tól fyrir greiningu og myndræna framsetningu á gögnum. Farið er yfir hvernig ChatGPT getur tengst öðrum þjónustum og hvernig hægt er að gera GPTs fyrir sérhæfð verkefni. Einnig er farið yfir hvernig hægt er að nota ChatGPT í stærri og flóknari verkefnum. Þátttakendur fá að sjá fjölbreytt sýnidæmi og vinna svo í verkefnum sem krefjast notkunar á öllum þessum tólum.
Þátttakendur eru hvattir til að nota ChatGPT í starfi sínu og utan vinnu á milli kennslutíma. Þannig geta þeir betur nýtt seinni daginn þegar kemur að umræðum, bæði með því að deila reynslu og með því að biðja um ráð.

Á námskeiðinu er fjallað um
- Kynningu á ChatGPT og könnun möguleika: Þátttakendur læra á notendaviðmót ChatGPT og auka skilning á því sem hægt er að gera með þjónustunni.
- Fjölbreytt notagildi: Sýnt verður hvernig nýta má ChatGPT á einfaldan máta og einnig hvernig hægt er að nota flóknari tól í fjölbreyttum verkefnum.
- Umræðu um ábyrga notkun: Snert verður á persónuverndar- og öryggissjónarmiðum gagna í samhengi gervigreindar.
Ávinningur þinn
- Þú lærir að nota gervigreindarlausnir til að fást við raunveruleg verkefni á áhrifaríkan hátt.
- Þú tileinkar þér traustan skilning á ChatGPT:
- Byggir upp trausta grunnþekkingu á ChatGPT.
- Lærir að nota öll helstu tólin sem þjónustan býður upp á
- Verkleg þjálfun með ýmsum hagnýtum verkefnum
- Þú býrð þig undir stafrænu byltinguna:
- Færð innsýn í gervigreindarbyltinguna
- Eykur skilning á því hvernig ChatGPT breytir heimi viðskipta og tækni.
Fyrir hverja
Þetta námskeið er ætlað fjölbreyttum markhópi og er fyrir öll þau sem hafa áhuga á gervigreind og vilja læra að nota ChatGPT í starfi. Námskeiðið er fyrir byrjendur og þau sem vilja læra á þau fjölbreyttu tól sem fylgja ChatGPT, frekar en fyrir reynda notendur sem stefna að því að dýpka sérþekkingu sína í tilteknum tæknilegum þáttum.
Mikilvægt er að þátttakendur séu búnir að ganga frá skráningu og kaupum á áskrift að ChatGPT fyrir námskeiðið því ekki gefst nægur tími á meðan námskeiðinu stendur til að aðstoða þátttakendur við slíkt á námskeiðstímanum.

Nánar um kennara
Sverrir Heiðar Davíðsson starfar sem leiðtogi í hagnýtingu gervigreindar hjá Orkuveitunni og hefur yfir 5 ára reynslu á sviði gervigreindar. Sverrir er með M.Sc. í gervigreind og gagnavísindum frá DTU og B.Sc. í hugbúnaðarverkfræði frá HÍ.
Corey Scott Harpe starfar sem leiðtogi líkana og gagnavísinda hjá Veitum og hefur yfir 5 ára reynslu í orku- og veituiðnaði. Corey er með M.Sc. gráðu í orkuverkfræði frá HR og B.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá UF.
Sverrir og Corey unnu saman í teymi snjallvæðingar og stafrænnar þróunar hjá Veitum í þrjú ár og leiddu þar þróun gervigreindarvegferðarinnar hjá Veitum.

Aðrar upplýsingar
Nauðsynlegt er að vera með fartölvu. ChatGPT er þjónusta sem notuð er í gegnum netið á vefsíðu og krefst ekki öflugrar tölvu til að nota.
Sæmileg tölvukunnátta er nauðsynleg, þátttakendur verða að vera búnir að fara sjálfir á síðuna, búa sér til aðgang og greiða fyrir einn mánuð af ChatGPT Plus áskrift fyrir áður en námskeiðið byrjar (mánaðaráskrift kostar tæplega 3500 ISK). Frekari upplýsingar og leiðbeiningar inni á Mínum síðum fyrir þá sem skrá sig á námskeiðið.

Þetta námskeið er aðeins ætlað félagsfólki Iðunnar fræðsluseturs.
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
26.02.2025 | mið. | 12:45 | 16:15 | Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7 |
27.02.2025 | fim. | 12:45 | 16:15 | Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7 |