Hússtjórnarkerfi - rekstur og viðhald
Blikksmiðir, vélvirkjar, vélfræðingar og fl.
Námskeiðið veitir innsýn í vaxandi mikilvægi tæknilegs rekstrar á opinberum og einkareknum byggingum og hver eru markmið og verkefni rekstrarsviðs. Nútíma byggingar er oftar en ekki hlaðnar tæknikerfum af ýmsum toga.
Starf umsjónaraðila slíkra bygginga hefur því undanfarin misseri tekið stakkaskiptum hvað varðar kröfu um tæknilæsi og meðhöndlun upplýsinga. Eitt öflugasta verkfæri umsjónarmanna er í dag hússtjórnarkerfi en meginmarkmið þess er að stýra notkun, samræma og vakta hin ýmsu tæknikerfi byggingarinnar.
Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að geta útbúið hagnýtar starfslýsingar sem lýsa markmiðum og verkefnum rekstrarsviðs, auk þess að þekkja hvaða verkfæri og kerfi rekstraraðilar þurfa að hafa til að geta sinnt starfi sínu á skilvirkan hátt.
Farið er yfir eftirfarandi þætti á námskeiðinu:
- Helstu kröfur notanda til tæknikerfa í byggingum
- Uppbygging hússtjórnarkerfis og helstu tæknikerfi bygginga
- Notkunarmöguleikar hússtjórnarkerfis
- Bilanaleit og fyrirbyggjandi aðgerðir með hússtjórnarkerfi
- Eftirlit og stjórnun orkunotkunar í byggingum
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
19.02.2025 | mið. | 09:00 | 16:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |