CNC-stýrðar iðnvélar
Málmtæknimenn - vélstjórar
CNC stýrðar iðnvélar eru mikilvæg framleiðslutæki í iðnaði og notkun þeirra verður stöðugt algengari.Á þessu 20 klukkustunda námskeiði er unnið með eftirfarandi atriði sem tengjast tölvustýrðum iðnaðarvélum:- Öryggisatriði og öryggisstaðlar- Grundvallarhugtök og virkni forrita- Uppbygging og virkni tölvustýrðra véla- Rétt val á verkfærum- NC kóðar, lestur og skrift- Inventor Cam- Verklegar æfingar í Haas Desktop MillÍ lok námskeiðsins eiga þátttakendur að geta tekið teikningu og unnið hana yfir í fræsivél.Nemendur kynnast aðferðum sem beitt er til að smíða hluti samkvæmt teikningu í tölvustýrðri iðnaðarvél. Þeir kynnast og verða færir um að beita ISO kóða og G kóða. Teikniforrit til að búa til vinnslustykki er kynnt (CAD - Computer Aided Design) og sömuleiðis vélaforrit til að forrita ferla og aðgerðir til vinnslu smíðahluta (CAM – Computer Aided Manufacturing).
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
18.02.2025 | þri. | 17:00 | 22:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |
19.02.2025 | mið. | 17:00 | 22:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |
20.02.2025 | fim. | 17:00 | 22:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |