Staðnám
Vatnsúðakerfi – sprinkler
Pípulagningamenn
Námskeiðið er ætlað pípulagningamönnum með full sveins- og meistararéttindi og er haldið í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem gefur út leyfi til þeirra sem ljúka prófi með fullnægjandi árangri. Farið er yfir hönnun vatnsúðakerfa, staðla, lög og reglugerðir sem eru í gildi. Einnig er farið yfir lagnaefni sem notað er í vatnsúðakerfi sýnd virkni þeirra í sprinkler kennslukerfi IÐUNNAR sem er uppsett í Vatnagörðum. Öllum er frjáls þátttaka á námskeiðnu en einungis pípulagningameistarar öðlast réttindi til að hafa eftirlit með kerfunum.
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
07.02.2025 | fös. | 13:00 | 19:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |
08.02.2025 | lau. | 09:00 | 16:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |