Langar þig að læra að búa til ljúffenga og girnilega kokteila? Grunnnámskeið í kokteilagerð.
Allir sem vilja læra grunnfærni á barnum og töfrana við blöndun kokteila.
Námskeiðið er hugsað fyrir alla sem vilja læra grunn færni á barnum og töfrana við blöndun kokteila.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist grunnfærni í blöndun kokteila til að bera fram á barnum eða einfaldlega að geti slegið um sig í næstu veislu
Á námskeiðinu er farið yfir öll undirstöðuatriði í kokteilagerð. Farið verður yfir mismunandi aðferðir við framreiðslu á kokteilum, læra að nota baráhöld og fræðast um sígildar kokteila uppskriftir sem eru geysi vinsælar á börum og veitingahúsum í dag. Á námskeiðinu eru gerðir þrír kokteilar frá grunni og tekur það um 3 klst.
Námskeiðið hentar fullkomlega fyrir alla þá sem hafa áhuga á kokteilagerð.
Kennari námskeiðsins er Teitur Riddermann Schiöth. Teitur hefur yfirgripsmikla reynslu sem spannar meira en áratug í bar geiranum og hefur hann unnið til fjölda verðlauna í greininni. Teitur er framreiðslumeistari að mennt og gegnir stöðu forseta Barþjónaklúbbs Íslands. Teitur er einn af kennurum í Kokteilaskólanum.
Innifalið í námskeiðsgjaldinu er veglegt kokteilasett fyrir alla þátttakendur.
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
04.02.2025 | þri. | 18:00 | 21:30 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |