Staðnám (fjarnám í boði)

Hvað er fæðuofnæmi og -óþol, bóklegt fæðuofnæmisnámskeið

Hugsað fyrir hvern þann sem starfar við matreiðslu / matargerð

Námskeiðið er hugsað fyrir hvern þann sem starfar við matreiðslu / matargerð  og langar að bæta við þekkingu sína á fæðuofnæmi og -óþoli, þekkja helstu ofnæmis- og óþolsvaldana og hvernig stuðla má að góðri næringu og fjölbreytni þrátt fyrir fæðuofnæmi og -óþol.

Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu þátttakenda og auka skilning og ábyrgð starfsmann í eldhúsinu þegar kemur að fæðuofnæmi & -óþoli.

Bóklegur hluti:

  • Kynning á nemendum og kennurum.
  • Hvað er fæðuofnæmi & -óþol, greining, algengi, helstu ofnæmis- og óþolsvaldarnir, hvernig stuðlum við að góðri næringu og fjölbreytni þrátt fyrir fæðuofnæmi og -óþol.
  • Samfélagsleg ábyrgð gagnvart börnum og ungmennum með fæðuofnæmi og hvernig vinna fjölskyldur og einstaklingar með aðilum í skólum, leikskólum, frístunda- og íþróttastarfi og öðru sem tengist daglegu lífi í að skapa gott og öruggt samfélag fyrir öll.
  • Kynning á viðbragðsáætlun Astma og ofnæmisfélags Íslands.

Verklegur hluti:

  • Kynning á kennara og farið yfir vinnuaðstöðuna.
  • Kynning á ýmsum vörum fyrir mismunandi ofnæmis- og óþolsfæði.
  • Farið yfir vörutegundir og notkunarmöguleikar ræddir.
  • Umræður og spurningar.
  • Nemendur og kennari finna viðeigandi verkefni úr matreiðslubókinni. Kræsingar án ofnæmisvalda Höfundur Alice Sherwood. Þýdd af Fríðu Rún Þórðardóttur.
  • Verkleg matreiðsla; nemendur velja verkefni í samræmi við þarfir þeirra og vinnustaðarins.
  • Smökkun og umræður.

Aðrar upplýsingar:Kennarar:

Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingur og formaður Astma- og Ofnæmisfélags Íslands

Selma Árnadóttir varaformaður Astma- og Ofnæmisfélags Íslands

Guðný Jónsdóttir næringarrekstrarfræðingur og matreiðslukennari í MK.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
28.01.2025þri.15:0018:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband