Staðnám

Langar þig að læra að búa til ljúffenga og girnilega kokteila? Grunnnámskeið í kokteilagerð.

Allir sem vilja læra grunnfærni á barnum og töfrana við blöndun kokteila.

Námskeiðið er hugsað fyrir alla sem vilja læra grunn færni á barnum og töfrana við blöndun kokteila. 

Markmið námskeiðsins er að  þátttakendur öðlist grunnfærni í blöndun kokteila til að bera fram á barnum eða einfaldlega að geti slegið um sig í næstu veislu

Á námskeiðinu er farið yfir öll undirstöðuatriði í kokteilagerð. Farið verður yfir mismunandi aðferðir við framreiðslu á kokteilum, læra að nota baráhöld og fræðast um sígildar kokteila uppskriftir sem eru geysi vinsælar á börum og veitingahúsum í dag. Á námskeiðinu eru gerðir þrír kokteilar frá grunni og tekur það um 3 klst.

Námskeiðið hentar fullkomlega fyrir alla þá sem hafa áhuga á kokteilagerð.

Kennari námskeiðsins er Teitur Riddermann Schiöth. Teitur hefur yfirgripsmikla reynslu sem spannar meira en áratug í bar geiranum og hefur hann unnið til fjölda verðlauna í greininni. Teitur er framreiðslumeistari að mennt og gegnir stöðu forseta Barþjónaklúbbs Íslands. Teitur er einn af kennurum Kokteilaskólans.

Innifalið í námskeiðsgjaldinu er veglegt kokteilasett fyrir alla þáttakendur.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
21.01.2025þri.18:0021:30IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband