Bilanagreining háspennurafhlaða
Þetta námskeið er haldið í samstarfi við Pro-Moto Europe í Bretlandi og er hugsað sem ákveðið framhald af IMI rafbílanámkseiði á þrepi 4. Það hefur verið hannað til að gefa þáttakendum innsýn inn í ferli bilanagreiningar og viðgerðar þegar kemur að háspennurafhlöðum bíla.
Fjölda raf og tvinn bíla á götunum fer sífelt fjölgandi og eftir því sem þeir eldast verður eitt aðaláhyggjuefni eigenda að háspennurafhlaðan gefi sig og þann kostnað sem því getur fylgt sérstaklega ef á að skipta algjörlega um rafhlöðu, en í mörgum tilfellum er möguleiki á að gera við rafhlöðuna fyrir mun minni kostnað ef þekking á verkstæðum er fyrir hendi.
Á námskeiðinu verður einblýnt á mismunandi gerðir háspennu rafhlaða, greiningu bilana, viðgerðaraðferðir og prófanir. Farið verður yfir:
- Týpur háspennurafhlöða
- Uppbyggingu háspennurafhlaða
- SOC og SOH
- Tækniupplýsingar um háspennurafhlöðu
- Spennujöfnun(Balancing)
- Prófanir á háspennurafhlöðu
- Viðgerð á háspennurafhlöðu
- Prófun eftir viðgerð
Námskeiðið er að hluta verklegt þar sem þátttakendur koma til með að vinna með háspennu rafhlöður. Æskilegt að þátttakendur hafi lokið IMI rafbílanámskeiði á þrepi 4 eða sambærilegu. Kennt er á ensku.